Nähe - Vasar A6

1.590 kr

Gæðavasi í A6 stærð (sem er eins og A4 blað sem er búið að brjóta saman… og svo aftur). Þessi er sá minnsti af þeim sem við erum með í Heimilisfélaginu. Frúin í Heimilisfélaginu er með MUNA snepla út um allt og sérstaklega safnast þeir fyrir í töskunni. Þessi kjút A6 vasi mun sjá til þess að það “vandamál” verði úr sögunni.

Vasarnir fást í þremur stærðum í Heimilisfélaginu
A4 35x25x2,3 cm
A5 20 x 25.8 x 2.3cm
A6 13 x 17.7 x 2.3cm

 

Um Nähe

Orðið Nähe stendur á þýsku fyrir að að vera nálægur. Það kemur því ekki á óvart að það er einmitt hugmyndin að baki hönnunarinnar, þ.e. að búa til vörur sem auðvelda okkur að hafa vörurnar sem við notum dagsdaglega, nálægar og í góðu skipulagi. Vörurnar samanstanda af litríkri línu af buddum í mismunandi stærðum og vösum fyrir skjöl, alveg frá A4 blöðum og niður í litlar buddur fyrir miða og annað smálegt. Þó nafnið gefi til kynna að merkið sé þýskt þá er alls ekki þannig, Nähe er frá Fukuoka í Japan og tilheyrir Hightide fjölskyldunni líkt og Penco.