Nähe - Vasar A4

2.090 kr
Varan er uppseld. Ef þú hefur áhuga á að fá upplýsingar um hvort von er á vörunni aftur, sendu okkur þá línu á heimilisfelagid@gmail.com

Gæðavasi fyrir skjölin í vinnunni, fyrir pappíra þegar þú ert á ferðalagi, fyrir tímarit, listaverk barnanna eða þín eigin, stílabækurnar, föndur eða jafnvel iPadinn. Aftan á er stór vasi og tveir minni að innanverðu.

Vasarnir fást í þremur stærðum í Heimilisfélaginu
A4 35x25x2,3 cm
A5 20 x 25.8 x 2.3cm
A6 13 x 17.7 x 2.3cm

 

Um Nähe

Orðið Nähe stendur á þýsku fyrir að að vera nálægur. Það kemur því ekki á óvart að það er einmitt hugmyndin að baki hönnunarinnar, þ.e. að búa til vörur sem auðvelda okkur að hafa vörurnar sem við notum dagsdaglega, nálægar og í góðu skipulagi. Vörurnar samanstanda af litríkri línu af buddum í mismunandi stærðum og vösum fyrir skjöl, alveg frá A4 blöðum og niður í litlar buddur fyrir miða og annað smálegt. Þó nafnið gefi til kynna að merkið sé þýskt þá er alls ekki þannig, Nähe er frá Fukuoka í Japan og tilheyrir Hightide fjölskyldunni líkt og Penco.