Traveler´s passport size Notebook – #4 Zip lock

890 kr

//Passport size//

#4 er Zipper Case. Öðru megin er vasi með Zip Lock. Hinu megin eru svo tveir vasar fyrir t.d. kreditkort og annar stærri vasi. Þessi er mjög sniðugur til að geyma litla dótið sem má alls ekki týnast, t.d. strætómiða, innleggsnótur og góðar minningar.

Stærð : 9,0 x 13 cm 


Að setja ný innvols í leðurcoverið
Þú rennir innvolsinu undir teygjuna í bókinni. Ef þú ert með þrjú eða fleiri innvols þá er hægt að fá bönd sem sett eru um kjölinn á bókinni og þá geturðu bætt endalaust af innvolsi í bókina.

Traveler´s Company
Traveler´s Company á rætur að rekja til ársins 1950 en þá var fyrirtækið stofnað undir nafninu Midori. Frá stofnun hefur fókusinn verið á framleiðslu á vörur sem eru bæði praktískar og fallegar. Þessu hafa þau náð með því að setja sérstaka áherslu á að framleiða einungis úr gæðaefnum. Merkið er best þekkt fyrir klassísku Traveler´s Notebook sem við bjóðum upp á í Heimilisfélaginu.