Traveler´s passport size Notebook – Dagbókarinnvols #6 Free Diary Month

1.290 kr

//Passport size//

Innvols #6 er ódagsett dagbókarinnvols, einn mánuður á hverri opnu. 
Opnurnar eru 14 þannig að hægt er að nota innvolsið í 14 mánuði.
Aftast í innvolsinu eru svo 12 auka ólínustrikaðar blaðsíður.

Stærð: 8,9 x 12,4 cm

Að setja ný innvols í leðurcoverið
Þú rennir innvolsinu undir teygjuna í bókinni. Ef þú ert með þrjú eða fleiri innvols þá er hægt að fá bönd sem sett eru um kjölinn á bókinni og þá geturðu bætt endalaust af innvolsi í bókina.

Traveler´s Company
Traveler´s Company á rætur að rekja til ársins 1950 en þá var fyrirtækið stofnað undir nafninu Midori. Frá stofnun hefur fókusinn verið á framleiðslu á vörur sem eru bæði praktískar og fallegar. Þessu hafa þau náð með því að setja sérstaka áherslu á að framleiða einungis úr gæðaefnum. Merkið er best þekkt fyrir klassísku Traveler´s Notebook sem við bjóðum upp á í Heimilisfélaginu.