Traveler´s Notebook – Dagbókarinnvols #19 Free Weekly Planner + Memo

2.090 kr

Innvols #19 er ódagsett dagbókarinnvols fyrir 6 mánuði.
Ein vika á vinstri blaðsíðu og rúðustrikuð síða á móti fyrir to do listana eða eitthvað annað gagnlegt.  

Stærð: 11 x 22 cm

Að setja ný innvols í leðurcoverið
Þú rennir innvolsinu undir teygjuna í bókinni. Ef þú ert með þrjú eða fleiri innvols þá er hægt að fá bönd sem sett eru um kjölinn á bókinni og þá geturðu bætt endalaust af innvolsi í bókina.

Traveler´s Company
Traveler´s Company á rætur að rekja til ársins 1950 en þá var fyrirtækið stofnað undir nafninu Midori. Frá stofnun hefur fókusinn verið á framleiðslu á vörur sem eru bæði praktískar og fallegar. Þessu hafa þau náð með því að setja sérstaka áherslu á að framleiða einungis úr gæðaefnum. Merkið er best þekkt fyrir klassísku Traveler´s Notebook sem við bjóðum upp á í Heimilisfélaginu.