Traveler´s passport size Notebook – #12 Sticky notes

1.790 kr

//Passport size//

Númer #12 er gulir miðar sem hægt er að festa í bókina eins og hvert annað innvols. Gulu miðarnir eru af ýmsum stærðum og gerðum og virka hvort heldur sem við ætlum að skrifa sjálfum okkur kveðjur, minnisatriði eða fyrir hina margfrægu Todo lista. Miðarnir í heftinu eru af ýmsum stærðum og gerðum en samtals eru þetta 150 miðar með lími á bakhliðinni.


Að setja ný innvols í leðurcoverið
Þú rennir innvolsinu undir teygjuna í bókinni. Ef þú ert með þrjú eða fleiri innvols þá er hægt að fá bönd sem sett eru um kjölinn á bókinni og þá geturðu bætt endalaust af innvolsi í bókina.

Traveler´s Company
Traveler´s Company á rætur að rekja til ársins 1950 en þá var fyrirtækið stofnað undir nafninu Midori. Frá stofnun hefur fókusinn verið á framleiðslu á vörur sem eru bæði praktískar og fallegar. Þessu hafa þau náð með því að setja sérstaka áherslu á að framleiða einungis úr gæðaefnum. Merkið er best þekkt fyrir klassísku Traveler´s Notebook sem við bjóðum upp á í Heimilisfélaginu.